Jan Feb Mar Apr Maí Jún Júl Ágú Sep Okt Nóv Des
04.02.2025
Opnunartími skrifstofu MS-félagsins breytist nú í febrúar og verður hún framvegis lokuð á föstudögum.
17.03.2023
Okkar vinsæla páskabingó fyrir MS-fólk og fjölskyldur þeirra verður haldið laugardaginn 1. apríl klukkan 13-15. Skráning nauðsynleg.
03.02.2023
MS-félagið hefur gert samning við Samskiptastöðina um veitingu sálfræðiþjónustu fyrir félaga í húsnæði félagsins að Sléttuvegi 5.
05.01.2023
MS fólk á Suðurlandi boðar til hittings 9. janúar kl. 20 í húsi Rauða krossins á Selfossi að Eyravegi 23. Fulltrúar frá MS-félagi Íslands munu einnig mæta til að ræða starf félagsins og áherslur á komandi misserum.
30.12.2022
Spjallhópurinn SMS er til staðar á Suðurnesjunum og hittist hópurinn fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 19:30 í Sjálfsbjargarheimilinu, Suðurgötu 12, Keflavík. Miðvikudaginn 4. janúar heimsækja fulltrúar MS-félagsins hópinn ásamt Maríu félagsráðgjafa. Léttar veitingar í boði. Vonumst til að sjá sem flesta félaga á Suðurnesjum.
28.12.2022
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um námsstyrk. Umsóknir fyrir vorönn skulu berast fyrir lok janúar.
22.12.2022
Sendum hugheilar jólakveðjur til félaga, vina og velunnara og minnum á jólalokun skrifstofu.
11.11.2022
Almanak ársins 2023 með fallegum myndum Eddu Heiðrúnar Backman er komið í sölu. Þá kynnum við nýtt jólakort með mynd af Herðubreið eftir Ingvar Thor Gylfason.
09.09.2022
Kenney Jones og félagar í bresku hljómsveitinni The Jones Gang, halda styrktartónleika í Háskólabíói þann 27. október. Miðasala á Tix.is
05.09.2022
ÖBÍ – réttindasamtök, sem MS-félag Íslands er aðili að, hafa fengið nýja og gjörbreytta ásýnd og umgjörð. Áherslan er á sterka jákvæða ímynd og víðtæka þátttöku. Við óskum samtökunum til hamingju með útkomuna og hlökkum til að starfa á þeim vettvangi þar sem geta, möguleikar, réttindi og ábyrgð verða í fyrirrúmi.