Fræðsluteymi félagsins hefur á að skipa þremur konum sem allar hafa áralanga reynslu og víðtæka þekkingu á MS-sjúkdómnum og þekkingu á að ræða um viðkvæm málefni. Hægt er að óska eftir samtali við einhverja þeirra.

Slík viðtöl gagnast sérstaklega vel nýgreindum einstaklingum og aðstandendum þeirra en við greiningu vakna oft margar spurningar sem gott er að fá svör við milliliðalaust.

Einnig er hægt að fá ráðgjöf hjá fræðsluteyminu eða óska eftir fræðsluerindi fyrir til dæmis kennara, skólastjórnendur og/eða nemendur, leiðbeinendur og félaga í félagsstarfi, vinahópa eða ættingja.

Hægt er að skrifa skilaboð til fræðsluteymis (þarf ekki að vera undir nafni).

 

Berglind Guðmundsdóttir, fyrrum formaður

Berglind

Ég greindist með MS 1982 þá 22 ára. Fyrstu einkenni voru dofi í fótum og sjóntruflanir. Ég hafði einnig fundið fyrir óeðlilegri þreytu frá barnsaldri. Ég fékk köst sem gengu til baka til ársins 2000 en þá fóru köstin að skilja eftir sig einkenni, aðallega í skertri færni í fótum. Ég notast núna við göngugrind.

Þegar ég greindist voru engin MS-lyf til. Ég fór fyrst á MS-lyf árið 2002 og er enn á lyfjum. Ég nota einnig einkennatengd lyf við taugaverkjum. Ég fylgist vel með umræðum um lyf og þjónustu við MS-fólk og hef kynnt mér umræðu um mataræði og hreyfingu. Ég hef farið í skóla og á vinnustaði með fræðslu um MS.

Það má senda mér tölvupóst á bergling@simnet.is eða hringja á skrifstofu í síma 568 8620 leggja inn skilaboð og ég mun hafa samband.

 

 

 

Bergþóra Bergsdóttir

Bergthora

Ég greindist með MS 2004, þá 41 árs. Fyrstu einkenni gerðu þó vart við sig þegar ég var þrítug. Margir samverkandi þættir valda því að ég nota nú hjólastól til að komast um. Hef verið á ýmsum MS-lyfjum en hef enga reynslu af einkennatengdum lyfjum.

Hef viðað að mér þekkingu á MS og afleiðingum sjúkdómsins í gegnum árin með því að fylgjast vel með því sem er að gerast í „MS-heiminum“ og með samtölum mínum við fólk með MS og aðstandendur þeirra.

Skrifaði um árabil fræðslupistla á vefsíðu félagsins ásamt þvi að þýða þrjá og skrifa tvo fræðslubæklinga um líkamleg, hugræn og tilfinningatengd einkenni MS, sem útgefnir voru hjá félaginu í mars 2017. Hef haldið ýmis fræðsluerindi fyrir MS-félagið.

Hægt er að skrifa á netfangið msfelag@msfelag.is eða hringja á skrifstofu í síma 568 8620 og skilja eftir nafn og símanúmer og ég mun þá hringja til baka.

 

 

 

Sigurbjörg Ármannsdóttir, fyrrum formaður

SibbaÉg fékk fyrsta MS-kastið þegar ég var 16 ára árið 1966. Mér var þá sagt að þetta væri vírus sem gengi yfir og tók það nærri tvö ár. Síðan var ég einkennalaus í 5 ár. Eftir annað kast fékk ég MS-greiningu 1974. Með árunum smáversnaði mér og 1988 var ég komin í hjólastól. Í dag er ég hins vegar gangandi og bý við mjög góða heilsu með fáum takmörkunum.

Ég hef ekki notad MS-lyf en nota einkennatengd lyf. Ég stunda líkamsrækt og held mér þannig í góðu formi.

Ég hef verið virk í starfi MS-félagsins frá 1980 og var formaður í 6 ár. Í gegnum árin hef ég talað við mikinn fjölda MS-fólks og tel mig búa að reynslu sem getur gagnast fólki með MS.

Hægt er að skrifa mér á netfangið sjarm@simnet.is eða hringja í síma félagsins 568 8620 og panta viðtal.