Ykkar styrkur er okkar stoð

 

Viltu hjálpa til við að renna styrkari stoðum undir rekstur MS-félagsins og gerast Stoðvinur?

Stuðningur Stoðvina er ómetanlegur!

MS-félagið nýtur lítilla opinberra styrkja og innheimtir lágt félagsgjald svo velvild einstaklinga, félaga og fyrirtækja stendur undir meginstarfsemi félagsins.

Sem Stoðvinur styður þú félagið með mánaðarlegum framlögum (1.500 kr. eða hærra) og hjálpar þannig til við að renna styrkari stoðum undir rekstur félagsins.

Sem þakklæti fyrir stuðninginn fá allir Stoðvinir árlega jólaglaðning frá MS-félaginu.

Skilvirkast er fyrir Stoðvini að panta reglulegar millifærslur í sínum netbanka inn á reikning félagsins í Landsbanka Íslands nr. 0101-26-777120 og er kennitala félagsins 520279-0169.  

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 568 8620.