Jafningjastuðningur

Það getur verið hjálplegt að ræða við einhvern sem hefur gengið í gegnum svipaða reynslu og þú ert að ganga í gegnum, einhvern sem hefur þann skilning sem einungis fæst með því að upplifa hlutina sjálfur. 

MS-félagið býður upp á jafningjastuðning fyrir fólk sem greinst hefur með MS-sjúkdóminn og aðstandendur þeirra.  Þeir sem veita stuðninginn eru einstaklingar sem greinst hafa með sama sjúkdóm eða eru aðstandendur. Allir stuðningsfulltrúar hafa lokið stuðningsfulltrúanámskeiði. 

Hægt er að óska eftir jafningjastuðningi með því að hringja í síma 568 8620 eða fylla út form.

 

Hvað er jafningi?

Jafningjar geta ýmist verið MS-greindir eða aðstandendur.

Jafningi er sá sem ljáir eyra og veitir stuðning og ráð þeim sem eru í sömu eða svipaðri stöðu og jafningi hefur sjálfur verið í.

Þinn jafningi er einhver sem er á svipuðum aldri og þú og/eða með svipaða sjúkdómsgerð. Jafningi er sá sem hefur unnið vel úr þeim erfiðu tilfinningum sem tengst geta sjúkdómnum og er sökum reynslu sinnar og góðrar úrvinnslu í stakk búin(n) að vera öðrum stuðningur og hughreystir. Margir búa yfir dýrmætri reynslu sem þeir vilja glaðir leyfa öðrum að njóta. 

 

Vilt þú veita jafningjastuðning?

Jafnt fólk með MS-sjúkdóminn og aðstandendur geta gerst stuðningsaðilar. 

Hægt er að óska eftir því að gerast stuðningsaðili með því að hringja í síma 568 8620 eða fylla út form.