Einkenni MS 

Stundum er talað um MS sem sjúkdóminn með þúsund andlit. Einkennin eru margbreytileg og einstaklingsbundin, þau geta verið tímabundin eða varanleg og mismunandi er að hve miklu leyti einkennin hafa áhrif á daglegt líf.

Sumir finna lítið og sjaldan fyrir einkennum á meðan aðrir upplifa mörg og erfið einkenni og það jafnvel oft eða stöðugt. Fáir geta algjörlega samsvarað sig öðrum, þó sum einkenni geti verið eins eða svipuð. Enginn fær öll einkenni sjúkdómsins og hægt er að meðhöndla mörg MS-einkenni með góðum árangri.

Einstaklingar með MS geta upplifað einkenni sem líkjast MS-einkennum en sem eiga sér allt aðra orsök en í sjúkdómnum.

 

Einkenni MS geta ýmist verið líkamleg eða hugræn, sýnileg sem ósýnileg. Líkamleg einkenni og sýnileg eru flestum skiljanleg og njóta samúðar en annað gildir um ósýnileg einkenni eins og hugrænar breytingar sem ekki eru eins augljósar og oft erfiðari að takast á við.

Líkamleg einkenni geta verið erfiðleikar við gang, dofi, mikil þreyta, sjóntruflanir, breytingar á jafnvægisskyni, minni máttur, skyntruflanir, skerðing á samhæfðum hreyfingum, vöðvaspenna, spasmi og verkir.

Hugrænar breytingar geta verið erfiðleikar með minni, tal, einbeitingu og athygli og breytingar á persónuleika og háttalagi, s.s. þunglyndi, tilfinningasveiflur og minna frumkvæði.

 

Hægt er að fá upplýsingar og góð ráð um ýmis hugræn einkenni hér til hliðar/neðar. 

 

Sjá ennfremur bæklingana: