Styrktarsjóður

 

MS-félagið er með styrktarsjóð sem styrkir ungt fólk með MS-greiningu til náms.

Sækja má um styrk til að greiða skólagjöld, námsbækur, námskeið sem eru hluti af námi og annað sem styrkir einstaklinginn á annan hátt til náms. 

Hámarksstyrkur er nú 60.000 kr. Ef einstaklingur hefur hlotið styrk er hægt að sækja aftur um styrk eftir tvö ár.

Úthlutun úr sjóðnum er tvisvar á ári, í febrúar og október.

Umsóknir fyrir vorönn skulu berast fyrir lok janúar.

Umsóknir fyrir haustönn skulu berast fyrir lok september.

Rétt til úthlutunar eiga þeir félagar í MS-félagi Íslands sem eru með MS-greiningu, á aldrinum 18-30 ára og skuldlausir við félagið.

Umsóknareyðublað er að finna hér fyrir neðan. Vinsamlega athugið að afrit af reikningum vegna skólagjalda eða námsgagna skal fylgja með umsókn.

Fullt nafn umsækjanda

Vinsamlega hakið við hvort fulltrúi MS-félagsins má hafa samband og fá mynd og/eða umfjöllun um styrkveitinguna í blaði félagsins og rafrænum miðlum. Svarið hefur engin áhrif á ákvörðun um veitingu styrks.
Eitthvað fleira sem umsækjandi vill að komi fram.
captcha