MS fólk á Suðurlandi boðar til hittings 9. janúar kl. 20 í húsi Rauða krossins á Selfossi að Eyravegi 23.
Fulltrúar frá MS-félagi Íslands munu einnig mæta til að ræða starf félagsins og áherslur á komandi misserum.
Spjallhópurinn SMS er til staðar á Suðurnesjunum og hittist hópurinn fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 19:30 í Sjálfsbjargarheimilinu, Suðurgötu 12, Keflavík. Miðvikudaginn 4. janúar heimsækja fulltrúar MS-félagsins hópinn ásamt Maríu félagsráðgjafa. Léttar veitingar í boði. Vonumst til að sjá sem flesta félaga á Suðurnesjum.
Hóhóhó, nú getum við aftur haldið jólaball eftir tveggja ára hlé.
Hurðaskellir og Kjötkrókur ætla að kíkja í heimsókn til okkar með glaðning fyrir börnin og verða þeir örugglega extra fjörugir í sprelli og dansi þar sem þeir hafa lítið getað prakkarast sl. tvö ár.
Ballið verður haldið laugardaginn 10. desember kl. 14-16 í safnaðarheimili Grensáskirkju. Húsið opnar kl. 13.30.
Veitingar, tertur og kruðerí.
Aðgangur er ókeypis en skráning nauðsynleg.
Almanak ársins 2023 með fallegum myndum Eddu Heiðrúnar Backman er komið í sölu. Þá kynnum við nýtt jólakort með mynd af Herðubreið eftir Ingvar Thor Gylfason.
MS-blaðið er komið út og er aðgengilegt hér á rafrænu formi. Það hefur einnig verið sent út til félagsmanna og styrktaraðila og ætti að berast þessa dagana.