Sigurður Sölvi Svavarsson, sjúkraþjálfari hjá Styrk, hefur sett upp dagatal með fjölbreyttum æfingum fyrir hvern dag mánaðarins: 

Einfaldur og "auðveldur" nóvember. 7 dagar, 7 mismunandi æfingar.

Einfalt, gott og auðvelt að gera erfiðara eða auðveldara eftir því sem á við.

Munum að setja okkur markmið fyrir mánuðinn til þess að hafa eitthvað til þess að vinna að á hverjum degi!

Prentvænu útgáfuna er að finna í hlekk hér neðst í textanum.

Ef þið hafið einhverjar spurningar, óskir eða fyrirspurnir sendið þær þá á: sigurdur@styrkurehf.is

Blöðin með æfingunum eru þrjú  - tvö með fyrirfram ákveðnum æfingum, en á það þriðja getur þú sett upp þitt eigið æfingaplan.

Hér getur þú nálgast æfingaprógrammið fyrir nóvember:

Plan með myndum    Plan með texta    Autt plan

 

Ert þú til í áskorunina?

Þú prentar æfingaplanið út, hengir það upp eða setur á áberandi stað. Á hverjum degi gerir þú æfingu dagsins – þessa fyrirfram ákveðnu eða þá sem þú ert búin að skrifa á þitt eigið æfingaplan.

Í hvítu reitina getur þú skráð þín eigin persónulegu markmið. 

Í lok mánaðarins getur þú litið stolt/ur yfir mánuðinn og hlakkað til að byrja á æfingum þess næsta. Þeim verður deilt mánaðarlega á fésbókinni. 

Sigurður Sölvi er annar tveggja sem sér um hina geysivinsælu hópþjálfun fyrir fólk með MS hjá Styrk, Höfðabakka 9.