Sigurður Sölvi Svavarsson, sjúkraþjálfari hjá Styrk, hefur sett upp dagatal með fjölbreyttum æfingum fyrir hvern dag mánaðarins.

 

Þá er apríl liðinn og maí genginn í garð. Við þurfum áfram að setja upp okkar eigin skipulag og halda áfram að æfa heima og vera mikið á hreyfingu úti í góða veðrinu.

Í apríl ætlum við að leggja áherslu á neðri hlutann og æfa mjaðmir, læri og kálfa sérstaklega ásamt því að taka planka í hverri viku! Þegar við tökum 2mín planka má skipta honum upp eins og þið viljið með það að markmiði að klára 120sek.

Fyrir þá sem eiga erfitt með að skipuleggja sig þá bendi ég á MUNUM dagbókina sem eru frábærar til að plana hverja viku fyrir sig og eru núna á afslætti!!

Ef þið hafið einhverjar óskir eða fyrirspurnir um æfingarpakka sendið þær þá á: sigurdur@styrkurehf.is

Sigurður Sölvi

 

Blöðin með æfingunum eru þrjú  - tvö með fyrirfram ákveðnum æfingum, en á það þriðja getur þú sett upp þitt eigið æfingaplan.

Hér getur þú nálgast æfingaprógrammið fyrir maí: 

 

Plan með myndum                              Plan með texta                           Autt plan

 

 

 

Við minnum einnig á heimaæfingarnar frá í apríl en þær má nálgast hér Þær er tilvalið að gera á meðan líkamsræktarstöðvarnar eru enn lokaðar. Að auki hefur Sigurður Sölvi gert stutt myndbönd þar sem hann tekur fyrir nokkrar æfingar. Þau er hægt að skoða hér  

 

Ert þú til í áskorunina?

Þú prentar æfingaplanið út, hengir það upp eða setur á áberandi stað. Á hverjum degi gerir þú æfingu dagsins – þessa fyrirfram ákveðnu eða þá sem þú ert búin að skrifa á þitt eigið æfingaplan.

Í hvítu reitina getur þú skráð þín eigin persónulegu markmið. 

Í lok mánaðarins getur þú litið stolt/ur yfir mánuðinn og hlakkað til að byrja á æfingum þess næsta. Þeim verður deilt mánaðarlega á fésbókinni. 

Sigurður Sölvi er annar tveggja sem sér um hina geysivinsælu hópþjálfun fyrir fólk með MS hjá Styrk, Höfðabakka 9.