Rafrænn aðalfundur MS-félags Íslands verður haldinn mánudaginn 10. maí kl. 17:00. Í ljósi aðstæðna verður fundurinn eingöngu rafrænn í ár. Nauðsynlegt er að skrá sig á fundinn fyrir fram og fer skráning fram hér. Skrá þarf þátttöku í síðasta lagi 9. maí.
 

Dagskrá fundar:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  2. Önnur mál

 

Í ár er óskað eftir framboði til formanns, eins aðalmanns í stjórn og eins varamanns í stjórn. Formaður og allir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára. Björg Ásta Þórðardóttir núverandi formaður hefur þegar tilkynnt að hún muni ekki gefa kost á sér til áframhaldandi formennsku.

Þá er óskað eftir framboðum í eftirfarandi nefndir og ráð á vegum félagsins (nánari lýsing á hlutverkum og starfi í lok fréttar):

 

Ungmennaráð
Viðburðanefnd
Ritnefnd MS-blaðsins
Hagsmunahóp

 

Félagsmenn af landinu öllu eru hvattir til að skoða sinn hug og gefa kost á sér í starf fyrir félagið. Félagið hefur yfir að ráða góðum fjarfundabúnaði og er búseta lítil hindrun fyrir þátttöku í starfinu.

Framboð skal tilkynna til skrifstofu eigi síðar en viku fyrir aðalfund með því að skrá sig hér eða senda tölvupóst á msfelag@msfelag.is og gefa upp fullt nafn, kennitölu og tölvupóstfang.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa þeir sem eru skráðir í félagið eigi síðar en viku fyrir fundinn og hafa greitt árgjald til félagsins.

Við hvetjum félagsmenn um land allt til að taka þátt.

 

Virðingarfyllst,

Stjórn MS-félags Íslands

 

Skráning á aðalfund

Framboð til stjórnar eða nefnda

 

Hlutverk og starf nefnda og ráða

Ungmennaráð:  Hlutverk ungmennaráðs er að vera félaginu til ráðgjafar og taka þátt í mótun stefnu fyrir yngra fólk í félaginu ásamt því að vera fulltrúar félagsins í ungmennaráðum og öðru starfi fyrir yngra fólk í regnhlífarsamtökum þeim sem félagið á aðild að, innlendum og erlendum. Ungmennaráð fer einnig fyrir félagshópnum ‚Skellur MS‘ sem í eru einstaklingar á aldrinum 18-35 ára. Tilgangur hópsins er að gefa fólki vettvang til að fræðast, deila reynslu, kynnast fólki og hafa gaman. Hópurinn stendur gjarnan fyrir viðburðum á borð við kaffihúsakvöld, keiluferðum og fleira, þegar aðstæður leyfa.

Viðburðanefnd: Viðburðanefnd stendur fyrir ýmsum uppákomum í félagsstarfinu og er stjórn og starfsfólki einnig til aðstoðar við fasta viðburði á vegum félagsins. Hér má nefna t.d. margvíslegar kynningar og fyrirlestra, föndurkvöld, páskabingó og jólaskemmtun.

Ritnefnd MS-blaðsins: Hlutverk ritnefndar MS-blaðsins er að afla greina í blaðið og móta stefnu þess í samvinnu við ritstjóra. MS-blaðið kemur út tvisvar á ári, að vori og hausti og er sent til félagsmanna, kostenda og fagaðila og er einnig aðgengilegt í rafrænu formi á heimasíðu.

Hagsmunahópur: Þetta er nýr hópur og er hlutverk hans að vera ráðgefandi fyrir stjórn og starfsfólk í ýmsum málum er varða hagsmuni félagsmanna og leitað er til félagsins með álit um, ásamt málum í samráðsgátt stjórnvalda.