Hið sívinsæla páskabingó fyrir MS-fólk og fjölskyldur þeirra verður haldið í MS-húsinu að Sléttuvegi 5, laugardaginn 9. apríl klukkan 13-15.

Húsið opnar klukkan 12.30. 

Vinningar eru páskaegg af ýmsum stærðum og gerðum. 

Verð pr. spjald er 500 kr.  og veitingar verða seldar á vægu verði. 

Bingóstjóri er hin ofurhressa Rebekka Magnúsdóttir, sú hin sama og þurfti að loka barnum á íslensku tónlistarverðlaununum.  

Þar sem takmarkað rými er í húsinu er nauðsynlegt að skrá þátttöku hér eða á skrifstofu í síma 568 8620.

Við hlökkum til að sjá ykkur!