Okkar vinsæla páskabingó fyrir MS-fólk og fjölskyldur þeirra verður haldið í MS-húsinu að Sléttuvegi 5, laugardaginn 1. apríl klukkan 13-15.
Húsið opnar klukkan 12.30.
Vinningar eru páskaegg af ýmsum stærðum í boði Góu.
Verð pr. spjald er 500 kr. og veitingar verða seldar á vægu verði.
Þar sem takmarkað rými er í húsinu er nauðsynlegt að skrá þátttöku hér fyrir neðan eða á skrifstofu í síma 568 8620.
Skrá þarf fjölda barna og fullorðinna.
Það er orðið fullt í páskabingóið en við tökum við nokkrum skráningum á biðlista.