Fyrirhugað er námskeið fyrir maka fólks með MS ef næg þátttaka næst.

 

TÍMI: 13. maí (mánud.)    kl. 17:00 – 20:00

           16. maí (fimmtud.) kl. 17:00  - 20:00

           20. maí  (mánud.)   kl. 17:00  - 20:00 

 

STAÐUR: Sléttuvegur 5, 103 Reykjavík.

VERÐ: 5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk. Boðið er upp á ávexti og kaffi.

LÝSING: Námskeiðið er fyrir maka fólks með MS og byggist á fræðslu og umræðum. Tilgangurinn með námskeiðinu er að fólk í svipaðri stöðu hittist og deili reynslu sinni og fái fræðslu. Fjallað verður um streitu, tilfinningar, áhrif MS á fjölskyldulífið, sjúkdóminn, slökun og fleira. Einnig eru ræddar leiðir til að auka lífsgæði fjölskyldumeðlima. Þátttakendur eru 6 til 7. Í lok námskeiðs er hægt að stofna sjálfshjálparhóp.

UMSJÓN: Sigríður Anna Einarsdóttir, félagsráðgjafi, fjölskyldu- og hjónaráðgjafi. Fleira fagfólk kemur að námskeiðinu.

UPPLÝSINGAR: Á skrifstofu í síma 568 8620 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is.

SKRÁNING: hér fyrir fimmtudaginn 9. maí.

 

 

Ítarlegar lýsingar á námskeiðum félagsins má finna hér

Upplýsingasíða fyrir aðstandendur hér.

 

 

BB

Mynd