MS-þreyta er engin venjuleg þreyta, eins og fram kemur í greininni „MS-þreyta er ekki auðveld viðfangs“ sjá hér.

Yfirþyrmandi og óútskýranleg þreyta getur hins vegar stafað af öðru en MS. Gott er að bera óútskýrða þreytu undir lækni, til dæmis heimilislækni. Læknirinn getur talið ástæðu til að senda þig í rannsóknir og í framhaldi af því til viðeigandi sérfræðings.

 

Hægt er að finna fyrir líkamlegri og/eða andlegri þreytu.

Líkamleg þreyta

MS-þreyta er íþyngjandi þreyta sem gerir einstaklingi erfitt fyrir í daglegum athöfnum. Sumir lýsa því þannig að það sé eins og segull sé í gólfinu sem dragi þá til sín og taki úr því allan mátt og orku. Allt taki lengri tíma í framkvæmd.

Andleg þreyta

Fyrir þá sem þjást af andlegri þreytu er erfiðara að hugsa skýrt og einbeita sér, muna það sem sagt er eða læra eitthvað nýtt. Fólki líður eins og bómull sé í stað heila.

 

Sá sem er þjakaður af MS-þreytu getur upplifað skyndilegt orkufall þar sem ómögulegt reynist að halda áfram því sem hann var að gera. Ekki er hægt að "vinna sig í gegnum þreytuna" eins og heilbrigðir einstaklingar hafa möguleika á, auk þess sem það tekur lengri tíma að endurheimta fyrri orku.

Þreytan getur líka haft neikvæð áhrif á önnur MS-einkenni. Því er mikilvægt að leita leiða til að takast á við þreytuna og auka þannig lífsgæði.

 

Góð ráð til að takast á við þreytuna:

  • Hvíld er ekki síður mikilvæg en verkefnin sem þú ætlar þér að vinna. Settu hvíldarstundir inn í daglega rútínu til að spara orku í allt þetta skemmtilega og nauðsynlega í lífinu. Taktu hvíldarstundirnar áður en þú ferð fram úr sjálfri/sjálfum þér.
  • Vertu meðvituð/-aður um hvað er góð hvíld fyrir þig. Að hvíla er meira en að leggja sig eða sofna. Prófaðu til dæmis að gera slökunaræfingar, fara í göngutúr eða hlusta á þægilega tónlist.
  • Reyndu að fá nægan og endurnærandi nætursvefn. Svefnvandi er ekki óalgengur meðal fólks með MS. Eigir þú við svefnvanda að stríða má finna góð ráð hér.
  • Lifðu heilbrigðu og reglusömu lífi, hugaðu að fjölbreyttu og hollu mataræði og því að halda blóðsykri jöfnum.
  • Vertu meðvituð/-aður um hvers konar þreytu þú finnur fyrir. Ef þér finnst þú andlega þreyttur þá er kannski best að forðast að leggja sig í sófann og hringja jafnframt í einhvern sem gæti ausið yfir þig vandamálum sínum og dregið þannig úr orku þinni (orkusuga).
  • Forgangsraðaðu verkefnum og finndu ráð til að spara orku við framkvæmd þeirra. Skipta einhver verkefni minna máli en önnur? Má skipta einhverju verkefni upp í smærri verkefni eða fela það öðrum?
  • Mikilvægi líkamsræktar og daglegrar útiveru er óháð líkamlegri getu og er oft vanmetin en hún eykur bæði líkamlega og andlega vellíðan. Hreyfing getur dregið úr þreytu, aukið þrek og styrk og bætt svefn, sem aftur getur aukið orku og minnkað þreytu. Reyndu að hreyfa þig eitthvað á hverjum degi - með æfingum eða gönguferðum.
  • Þreyta og áhugaleysi er einkennandi fyrir þunglyndi. Sýnt hefur verið fram á að meira er um þunglyndi hjá fólki með MS borið saman við einstaklinga með aðra alvarlega sjúkdóma. Þunglyndi ber að taka alvarlega. Það sem þú gætir gert er meðal annars að reyna að gera eitthvað sem veitir þér ánægju, þú gætir leitað þér upplýsinga og ráðgjafar um það sem plagar þig eða þú hefur áhyggjur af, þú gætir kynnt þér núvitund eða hugræna atferlismeðferð (sjá hér) eða talað (um vandamál þín) við aðra, svo sem vini, fjölskyldu eða fagfólk (t.d. sálfræðinga, lækna, hjúkrunarfræðinga, sjúkraþjálfara eða iðjuþjálfa). Sjá nánar um þunglyndi hér.
  • Forðastu of mikið álag og stress.
  • Skammtaðu þér ákveðinn tíma til að vinna verkefni. Ákveddu til dæmis að ryksuga í 10 mínútur í senn frekar en að klára að ryksuga íbúðina áður en þú tekur þér hvíld.
  • Notaðu hjálpartæki þegar þú getur. Þau geta komið að gagni við að spara orku. Hafðu til dæmis stól innan seilingar í eldhúsi og baðherbergi.
  • Ekki er ólagengt að MS-þreyta valdi því að fólk detti út af vinnumarkaði eða þurfi að fækka við sig vinnustundum. Væri hægt að breyta vinnutíma eða starfsaðstöðu til að gera vinnuna auðveldari?
  • Mörgum finnst þreyta aukast við hita, svo sem sótthita eða háan lofthita. Þá er besta ráðið að taka hitastillandi lyf, forðast heitt bað, sauna og heita potta og halda sig í skugga fremur en í beinni sól.
  • Taktu ráðlagðan dagskammt af B-12 vítamíni. Skortur á B-12 vítamíni kemur fram sem þreyta, máttleysi, mæði, nálardofi í útlimum, niðurgangur og aum tunga. Hægt er að láta mæla magn B-12 vítamíns í blóði. Sjá nánar um B-12 hér.
  • Sum lyf valda sljóvgun og þreytu. Ræddu við lækni þinn um hvort rétt sé að breyta lyfjameðferð.
  • Ef ekkert af ofantöldu virkar, talaðu þá við heimilislækni þinn eða taugalækni. Lyf gætu hjálpað.

 

Gangi þér vel :-)

 

Heimildir: hér, hér, hér og hér

Mynd með Common Creative leyfi

 

Bergþóra Bergsdóttir

 

 

Meira lesefni um sama efni:

MS-þreyta er ekki auðveld viðfangs, sjá hér