Sigurður Sölvi Svavarsson, sjúkraþjálfari hjá Styrk, hefur sett upp dagatal með fjölbreyttum æfingum fyrir hvern dag mánaðarins.

 

Dagatalið fyrir september leggur mesta áherslu á liðkun og jafnvægi sem eiga það til að gleymast þegar kemur að almennri hreyfingu.

Það sem flestir tala um eftir sumarið er að vera stirðir og stífir. Hvort sem það hefur tengst minni hreyfingu og ferðalögum eða mikilli göngu, hjólreiðum og annarri útiveru þá er mikilvægt að halda sér bæði liprum og sterkum.

Fyrir september gæti verið gott að setja sér markmið tengt liðleika en liðleiki í mjöðmum er sérstaklega mikilvægur fyrir heilbrigð hné og verkjalaust bak.

Höldum áfram að fara varlega og höldum okkur á hreyfingu.

Ef þið hafið einhverjar óskir eða fyrirspurnir um æfingapakka sendið þær þá á: sigurdur@styrkurehf.is

 Sigurður Sölvi

 

Blöðin með æfingunum eru þrjú - tvö með fyrirfram ákveðnum æfingum, en á það þriðja getur þú sett upp þitt eigið æfingaplan.

Hér getur þú nálgast æfingaáætlun mánaðarins: 

 

Plan með myndum                             Plan með texta                           Autt plan

 

Við minnum einnig á heimaæfingarnar frá í apríl en þær má nálgast hér Að auki hefur Sigurður Sölvi gert stutt myndbönd þar sem hann tekur fyrir nokkrar æfingar. Þau er hægt að skoða hér  

 

Ert þú til í áskorunina?

Þú prentar æfingaplanið út, hengir það upp eða setur á áberandi stað. Á hverjum degi gerir þú æfingu dagsins – þessa fyrirfram ákveðnu eða þá sem þú ert búin að skrifa á þitt eigið æfingaplan.

Í hvítu reitina getur þú skráð þín eigin persónulegu markmið. 

Í lok mánaðarins getur þú litið stolt/ur yfir mánuðinn og hlakkað til að byrja á æfingum þess næsta. Þeim verður deilt mánaðarlega á fésbókinni. 

Sigurður Sölvi er annar tveggja sem sér um hina geysivinsælu hópþjálfun fyrir fólk með MS hjá Styrk, Höfðabakka 9.