Sigurður Sölvi Svavarsson, sjúkraþjálfari hjá Styrk, hefur sett upp dagatal með fjölbreyttum æfingum fyrir hvern dag mánaðarins: 

 

September kom í dag með frábæru veðri og vegna útiveru koma markmið mánaðarins inn í seinna lagi í dag.

Eftir að hafa hugsað mest um kviðinn og bakið í ágúst hugum við sérstaklega að jafnvæginu í september.

Ég fékk að heyra það að myndirnar af æfingunum hefðu verið góð viðbót og mikið skemmtilegra að horfa á þær á ísskápnum frekar en dagatal með texta. Ef þið hafið einhverjar spurningar, óskir eða fyrirspurnir sendið þær þá á: sigurdur@styrkurehf.is.“

 


Blöðin með september-æfingunum eru þrjú núna - tvö með fyrirfram ákveðnum æfingum, en á það þriðja getur þú sett upp þitt eigið æfingaplan.

 

Hér getur þú nálgast æfingaprógrammið fyrir september; með myndmeð textaautt

  

Ert þú til í áskorunina?

Þú prentar æfingaplanið út, hengir það upp eða setur á áberandi stað. Á hverjum degi gerir þú æfingu dagsins – þessa fyrirfram ákveðnu eða þá sem þú ert búin að skrifa á þitt eigið æfingaplan.

Í hvítu reitina getur þú skráð þín eigin persónulegu markmið. 

Í lok mánaðarins getur þú litið stolt/ur yfir mánuðinn og hlakkað til að byrja á æfingum þess næsta. Þeim verður deilt mánaðarlega á fésbókinni.

 

Sigurður Sölvi er annar tveggja sem sér um hina geysivinsælu hópþjálfun fyrir fólk með MS hjá Styrk, Höfðabakka 9. 

 

 

Bergþóra Bergsdóttir, fræðslufulltrúi