Sigurður Sölvi Svavarsson, sjúkraþjálfari hjá Styrk, hefur sett upp dagatal með fjölbreyttum æfingum fyrir hvern dag mánaðarins: 

 

Markmið mánaðarins fyrir október eru eingöngu fyrir fótleggi í formi æfinga og göngu. Til þess að nýta haustið ætlum við að vera mikið úti á göngu á meðan veður leyfir.

Ég er sérstaklega spenntur að heyra hvernig gengur með mjaðmalyfturnar með bakið á sófanum (sjá 9. október) en hana má einnig gera á öðrum fæti í einu og er ein af mínum uppáhalds æfingum þessa dagana.

Munum eftir því að prentvænu útgáfuna er að finna í hlekk hér neðst í textanum.

Ef þið hafið einhverjarspurningar, óskir eða fyrirspurnir sendið þær þá á: sigurdur@styrkurehf.is

 


Blöðin með æfingunum eru þrjú núna - tvö með fyrirfram ákveðnum æfingum, en á það þriðja getur þú sett upp þitt eigið æfingaplan.

 

Hér getur þú nálgast allar þrjár útgáfurnar af æfingaprógramminu fyrir október: Æfingarprógramm

Ert þú til í áskorunina?

Þú prentar æfingaplanið út, hengir það upp eða setur á áberandi stað. Á hverjum degi gerir þú æfingu dagsins – þessa fyrirfram ákveðnu eða þá sem þú ert búin að skrifa á þitt eigið æfingaplan.

Í hvítu reitina getur þú skráð þín eigin persónulegu markmið. 

Í lok mánaðarins getur þú litið stolt/ur yfir mánuðinn og hlakkað til að byrja á æfingum þess næsta. Þeim verður deilt mánaðarlega á fésbókinni. 

Sigurður Sölvi er annar tveggja sem sér um hina geysivinsælu hópþjálfun fyrir fólk með MS hjá Styrk, Höfðabakka 9.