Sigurður Sölvi Svavarsson, sjúkraþjálfari hjá Styrk, hefur sett upp dagatal með fjölbreyttum æfingum fyrir hvern dag mánaðarins.

 

Í júní höfum við það að markmiði að hreyfa okkur sem mest úti: ganga, synda, hjóla og það á sem fjölbreyttastan hátt. Æfingar mánaðarins eru einfaldar og auðveldar í framkvæmd. Passa vel við göngu og annað skemmtilegt.

Setjum okkur markmið með hversu oft við ætlum út, hvað við ætlum að eyða mörgum mínútum úti, hversu langt við ætlum að fara og hversu gaman það verður á meðan.

Ef þið hafið einhverjar óskir eða fyrirspurnir um æfingarpakka sendið þær þá á: sigurdur@styrkurehf.is

Sigurður Sölvi

Blöðin með æfingunum eru þrjú  - tvö með fyrirfram ákveðnum æfingum, en á það þriðja getur þú sett upp þitt eigið æfingaplan.

Hér getur þú nálgast æfingaprógrammið fyrir júní: 

 

Plan með myndum                             Plan með texta                           Autt plan

 

Við minnum einnig á heimaæfingarnar frá í apríl en þær má nálgast hér Að auki hefur Sigurður Sölvi gert stutt myndbönd þar sem hann tekur fyrir nokkrar æfingar. Þau er hægt að skoða hér  

 

Ert þú til í áskorunina?

Þú prentar æfingaplanið út, hengir það upp eða setur á áberandi stað. Á hverjum degi gerir þú æfingu dagsins – þessa fyrirfram ákveðnu eða þá sem þú ert búin að skrifa á þitt eigið æfingaplan.

Í hvítu reitina getur þú skráð þín eigin persónulegu markmið. 

Í lok mánaðarins getur þú litið stolt/ur yfir mánuðinn og hlakkað til að byrja á æfingum þess næsta. Þeim verður deilt mánaðarlega á fésbókinni. 

Sigurður Sölvi er annar tveggja sem sér um hina geysivinsælu hópþjálfun fyrir fólk með MS hjá Styrk, Höfðabakka 9.