Ferðalög

Það er skemmtilegt að skipuleggja ferðalög og að mörgu að hyggja. Þegar maður fer í ferðlag er tilhlökkunin jafnan mikil og allt á að ganga snurðulaust fyrir sig. Það gerir það líka í flestum tilvikum.

 

Við skipulagningu á ferðum innanlands

er gott að fletta upp á vefsíðu Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar þar sem finna má góðar og gagnlegar upplýsingar um aðgengilega ferðamannastaði og gististaði, bílaleigur, flug, ferjur, leigubíla, rútur og strætisvagna.

Einnig má hér lesa um þá góðu aðstöðu sem ferðafélagið Útivist býður upp á í Básum (Þórsmörk).

 

Vefsíða Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar 

Góð aðstaða fyrir hreyfihamlaða í Básum (Þórsmörk)

Rútuferðir, bílaleigubílar, leigubílar 

 

TravAbleTravAble er ferðaþjónustuapp fyrir fólk með fötlun. Appið veitir upplýsingar um hvar aðgengi er best fyrir fólk með hreyfihömlun og auðveldar þeim þannig að fara um almannarýmið og skipuleggja sig fram í tímann. TravAble einblínir á staði sem veita fólki með hreyfihömlun góða þjónustu og taka mið af þörfum þeirra í sinni þjónustu. TravAble-appið ætlar fyrst um sinn að einbeita sér að íslenskum markaði en stefnan er sett á Norðurlöndin.

 

Við skipulagningu á ferðum erlendis

má á vefsíðu Þekkingarmiðstöðvarinnar meðal annars finna upplýsingar um bílaleigubíla, flugrútur og Leifsstöð, afslátt til öryrkja á gjaldi við útgáfu vegabréfa auk notkunar á P-merki og ökuskírteini erlendis.

Svo er hér hægt að smella á erlenda síðu sem hefur að geyma upplýsingar um aðgengi, t.d. að hótelum og skipulögðum ferðum í hinum ýmsu borgum víðs vegar um heim.

Ef hugurinn stendur til Danmerkur er hægt að leigja virkilega flott 75 m2 smáhýsi í Dronningens Ferieby við Grenaa á austurströnd Jótlands í lengri eða skemmri tíma. Einnig er hægt að leigja smáhýsi í Mättinge sem liggur á dásamlega fallegum stað á austurströnd Svíþjóðar í um 80 km suður af Stokkhólmi.

Á Tenerife er hægt að fá sértæka endurhæfingu, í ætt við Reykjalund, í sól og yl við ströndina.

 

Vefsíða Þekkingarmiðstöðvar Sjálfsbjargar 

Aðgengi í ýmsum borgum  (velja borgir af valstiku til vinstri) 

Reglur um notkun á P-merkinu um allan heim

 

Evrópa

Evrópska sjúkratryggingakortið 

Hús til leigu í Danmörku (Dronningens Ferieby á austurströnd Jótlands – danska MS-félagið, Scleroseforeningen)

Hús til leigu í Svíþjóð (Mättinge, um 80 suður af Stokkhólmi – sænska samband taugasjúkdóma, NHR. Ingó, sænskur starfsmaður, talar íslensku!) - Myndir 

Vintersol  (Endurhæfingarstöð fyrir fólk með tauga- og gigtarsjúkdóma við ströndina á Los Christianos á Tenerife (rétt hjá Playa de la Vistas ströndinni))

 

Geta hjálpartæki gert ferðina þægilegri?

Ef fólk á við gönguerfiðleika eða mikla þreytu að stríða getur verið gott að huga að fleiru en aðgengi þegar ferðir eru skipulagðar. Til dæmis gæti verið fýsilegt að leigja hjólastól eða göngugrind fyrir ferðina, fyrir þá sem ekki eiga slíkt og ef pláss er í bílnum.

Fyrir þá sem ekki eru vanir að nota hjálpartæki eins og hjólastól og vilja ekki gera sjúkdóminn sýnilegan, getur verið efitt að taka skrefið og setjast í stólinn.  Hins vegar getur stóllinn gert ferðalagið mun þægilegra og skemmtilegra, bæði fyrir notendann og samferðafólkið. Jafnvel verður hægt að sjá mun meira og gera fleira en ella og það án þess að klára alla orkuna. Hjálpartækið verður þá eins og góður ferðafélagi sem gerir góða ferð enn betri.

Til að minnka umfang hjólastóla er hægt að taka dekkin undan þeim, auk þess sem margir eru á einhvern hátt samanbrjótanlegir. Göngugrindur eru einnig margar hverjar samanbrjótanlegar.

Auðvelt er að taka stól/grind með í flug innanlands og erlendis. Það kostar ekki aukalega og telur ekki í kílóum. Það þarf bara að láta vita af stólnum/grindinni þegar flugið er bókað.

Þá er víða erlendis hægt að leigja rafskutlur. Hægt er að spyrjast fyrir á hótelum eða gúggla á netinu.

Fyrir þá sem eiga við einhvern þvagleka að stríða eru til þvagbindi fyrir konur og karla. Þvagbindi eru ósýnileg hjálpartæki sem gera ferðalögin mun afslappaðri og þægilegri þar sem ekki þarf alltaf að svipast um eftir salerni eða hafa áhyggjur af því að finna þau ekki. Þvagbindin er hægt að fá niðurgreidd að langmestu leyti (90%) með uppáskrift frá lækni sem sækir um úttektarheimild til Sjúkratrygginga. Þau er einnig hægt að kaupa í apótekum eða í miklu úrvali hjá Rekstrarvörum eða Rekstrarlandi.

Fleiri hjálpartæki gætu komið að gagni við að gera ferðalög auðveldari.

 

Leiga á hjálpartækjum hér og hér

Upplýsingar um hjálpartæki hér og hér

GoGo rafskutla hér

Travelsvoot rafskutla hér

 

Ferðasögur:

 

BÁSAR Á GOÐALANDI (ÞÓRSMÖRK):

Umfjöllun um aðgengi og aðstöðu í útivistarparadísinni Básum á Goðalandi.

Samantekt Bergþóru Bergsdóttur frá 2019.

 

Norðurlönd:

Látum MS ekki stoppa okkur

Viðtal við hjónin Margréti S. Guðmundsdóttur og Þóri I. Friðriksson. MeginStoð 2. tbl. 2015

Inngangur: Hreyfihömlun verður iðulega til þess að MS-fólk hættir að ferðast, bæði hér innanlands en ekki síst til útlanda. Það á þó ekki við um Margréti Sigríði Guðmundsdóttur, sem er með MS, og eiginmann hennar Þóri Inga Friðriksson, en í sumar skelltu þau sér í heilmikið ferðalag til Danmerkur og Svíþjóðar. 

 

Bandaríkin:

Ferðaraunir í Boston

Ferðasaga Jóns Hjaltalíns Stefánssonar og Birnu Kjartansdóttur (maí 2015)

 

Lumar þú á ferðasögu?

Það væri gaman ef þið senduð inn til félagsins gagnlegar vefslóðir og ferðasögur eða upplýsingar um aðgengi, þjónustu, leigu á hjálpartækjum eða annað sem ykkur finnst áhugavert frá ferðum ykkar innanlands eða erlendis. Myndir eru einnig vel þegnar.

Endilega deilið reynslu ykkar og þekkingu og hjálpið þar með öðrum til að skipuleggja ferð sína á auðveldari hátt.

Sendist á netfangið bergthora@msfelag.is en þar má einnig óska eftir nánari upplýsingum um skála Útivistar í Básum (Þórsmörk) og húsin í Danmörku og Svíþjóð (sjá hér ofar).