Í tilefni af Alþjóðadegi MS verður hin árlega sumarhátíð haldin fimmtudaginn 28. maí á Sléttuvegi 5 kl. 16:00 - 18:00.

Í ár er slagorð alþjóðalegu vitundavakningarinnar; “Mín MS-greining".

Vitundavakningin “Mín MS-greining“ berst fyrir snemmtækri og nákvæmri greiningu fyrir alla með MS. Hún varpar ljósi á alþjóðlegar hindranir við greiningu MS og vekur vitund með því að deila raunverulegum sögum og gögnum. Við köllum eftir betri MS-þjálfun fyrir heilbrigðisstarfsmenn, nýjum rannsóknum og klínískum framförum í MS-greiningu. Saman erum við að byggja upp upplýst og umhyggjusöm samfélög og kerfi sem styðja fólk sem greinist með MS.

Hlökkum til að sjá ykkur á Sléttuvegi 5!