MS-félagið er með styrktarsjóð sem styrkir ungt fólk með MS-greiningu til náms.

Sækja má um styrk til að greiða skólagjöld, námsbækur, námskeið sem eru hluti af námi og annað sem styrkir einstaklinginn á annan hátt til náms. Umsækjandi skal skila afriti af útlögðum kostnaði vegna námsins.

Hámarksstyrkur er 50.000 kr. á ári. Einstaklingur getur sótt aftur um styrk eftir tvö ár.

Úthlutun úr sjóðnum er tvisvar á ári.

Umsóknir fyrir vorönn 2021 skulu berast fyrir lok janúar.

Rétt til úthlutunar eiga þeir félagar í MS-félagi Íslands sem eru með MS-greiningu, á aldrinum 18-30 ára og skuldlausir við félagið.

Umsóknir með upplýsingum um nafn, kennitölu, símanúmer og reikningsnúmer, nám og afrit af greiðslugögnum má senda inn rafrænt hér á vefnum, senda á netfangið msfelag@msfelag.is eða með pósti á MS-félag Íslands, Sléttuvegi 5, 103 Reykjavík.

 

SÆKJA UM