Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
- Styrkja
Karfan er tóm.
Nú er undirbúningur fyrir Reykjavíkurmaraþonið í fullum gangi og við erum orðin mjög spennt fyrir þessum frábæra degi.
Nokkrir hlauparar hafa nú þegar skráð sig til leiks og ætla að hlaupa fyrir MS-félagið. Við erum þeim innilega þakklát fyrir að velja að styrkja félagið – og njóta um leið þeirrar einstöku stemningar sem fylgir Reykjavíkurmaraþoninu. Þar sameinast þúsundir þátttakenda sem þjóta, hlaupa, skokka, ganga og rúlla sér til styrktar góðum málefnum💜💜
Reykjavíkurmaraþonið er hátíð hreyfingar, heilsu og samveru og því hvetjum við alla félaga, aðstandendur og velunnara til að skrá sig til leiks með okkur. Það skiptir engu máli hvort þú velur 1,7 km, 3 km eða heilt maraþon – allir geta tekið þátt og allir geta safnað fyrir félagið.
💜Þú skiptir máli💜
Söfnunin okkar rennur fyrst og fremst í Styrktarsjóð MS-félags Íslands, sem veitir styrki tvisvar á ári. Fyrstu fimm milljónirnar sem safnast renna beint í sjóðinn. Náum við að fara yfir það mark gerir það félaginu jafnframt kleift að efla enn frekar mikilvæga þjónustu, fræðslu, rannsóknir, hagsmunabaráttu og önnur verkefni sem bæta líf fólks með MS.
Í fyrra söfnuðum við rúmlega fjórum milljónum, sem var met í söfnun félagsins. Þá slógum við einnig met í fjölda þátttakenda en rúmlega 70 hlauparar tóku þátt fyrir hönd MS-félags Íslands. Við erum enn í skýjunum yfir þessum frábæra árangri og þeirri velvild sem okkur var sýnd.
Í ár ætlum við að sýna enn á ný hvað samstaðan getur áorkað – og lyfta söfnuninni enn hærra. 💜
Hvert skref skiptir máli💜
Hvert framlag skiptir máli💜
Saman gerum við gæfumuninn. 💜
Hér er hægt að skrá sig:
MS-félag Íslands - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka
Hérna er líka hægt að sjá hlauparana okkar og heita á þá, jiiii þau eru svo ótrúlega dugleg💜
Við munum kynna okkar hlaupara jafn og þétt fram að stóra deginum á okkar samfélagsmiðlum - fylgstu með💜