MS-félagið er með styrktarsjóð sem styrkir ungt fólk með MS-greiningu til náms.

 

Umsóknareyðublað

 

Sækja má um styrk til að greiða skólagjöld, námsbækur, námskeið sem eru hluti af námi og annað sem styrkir einstaklinginn á annan hátt til náms. 

Hámarksstyrkur er nú 60.000 kr. Ef einstaklingur hefur áður fengið styrk er hægt að sækja um styrk aftur eftir tvö ár.

Úthlutun úr sjóðnum er tvisvar á ári, í febrúar og október og skulu umsóknir fyrir vorönn berast fyrir lok janúar.

Rétt til úthlutunar eiga þeir félagar í MS-félagi Íslands sem eru með MS-greiningu, á aldrinum 18-30 ára og skuldlausir við félagið.

Vinsamlega athugið að afrit af greiddum reikningum eða staðfesting á greiðslu skólagjalda eða námsgagna skal fylgja með umsókn.