15.04.2026
Kæru félagsmenn!
Við hlökkum til að sjá ykkur öll í dag kl. 16:30 - hvort sem er á Sléttuveginum eða á skjánum

Við verðum með beint streymi frá fræðsluerindunum okkar:
Fræðsluerindi:
Frá veikindum til lífeyris - hér verður farið yfir allt ferlið m.a. Tryggingastofnun, Virk, lífeyrissjóði og fleira.
Fyrirlesari:
Sigurveig Hjaltested Þórhallsdóttir
Osteostrong - hér fáum við góða kynningu á Osteostrong og hver ávinningur ástundunar er.
Fyrirlesari: Svanlaug Jóhannsdóttir
Hjálpartæki - hér fáum við góða innsýn í þau hjálpartæki sem eru á markaðnum, algengustu hjálpartækin. Rétt hjálpartæki geta auðveldað hið daglega líf og bætt lífsgæði.
Fyrirlesari: Berglind Bára Bjarnadóttir
Við hlökkum til að sjá ykkur