Fyrsta miðvikudag í mánuði kl. 18 hittast norðanmenn á veitingastaðnum Greifanum. Þangað koma MS-einstaklingar á öllum aldri.

Á næsta hittingi hópsins, sem er miðvikudaginn 1. mars 2023, munu fulltrúar frá MS-félagi Íslands mæta til að fræðast um starf hópsins og ræða starf félagsins og áherslur á komandi misserum. Þá verður María Rúnarsdóttir, félagsráðgjafi félagsins, með erindi um virkni í daglegu lífi.

Boðið verður upp á léttar veitingar. Vonumst til að sjá sem flesta félaga á Eyjafjarðarsvæðinu.

Tengiliðir við hópinn eru Dagbjört Anna Gunnarsdóttir, s: 868-9394 og Vilborg Sigurðardóttir s: 894-9391.

Facebook hópur fyrir MS-fólk og maka á Eyjafjarðasvæðinu.