Kynning fyrir einstaklinga með nýlega MS greiningu (miðað er við 0-2 ár) og nánasta aðstandanda.

Farið verður yfir ýmsan fróðleik s.s. viðbrögð við greiningu, áhrif á daglegt líf, helstu áskoranir og bjargráð.
Hópurinn er undir handleiðslu Berglindar Báru Bjarnadóttur framkvæmdastjóra og Helenu Unnarsdóttur félagsráðgjafa.
„Þegar maður greinist með sjúkdóm eins og MS er svo gott að hitta fólk í sömu aðstæðum og ræða málin.“

Verið hjartanlega velkomin - Munið að skrá ykkur fyrir miðvikudaginn 25.febrúar, email: msfelag@msfelag.is