Í MS-blaðinu sem sent var til félagsmanna í haust er að finna verðlaunakrossgátu. Í krossgátunni er að finna lausnarorð – málshátt – sem verðlaun verða veitt fyrir lausn á. Verðlaunin eru ekki af verri endanum – dagatal MS-félagsins fyrir árið 2020 með myndum Eddu Heiðrúnar Backman.

 

Sendið lausnina með nafni og símanúmeri á netfangið msfelag@msfelag.is eða komið við á skrifstofunni fyrir 1. desember.

Dregið verður úr réttum lausnum og tilkynnt um vinningshafa á heimasíðu félagsins þann 5. desember.

 

Krossgátuna má finna hér.