Síðasta MS-blað var tileinkað ósýnilegum einkennum MS og fékk umfjöllun blaðsins jákvæðar viðtökur. Félagið hefur því ákveðið að kanna umfang ósýnilegra einkenna meðal félagsmanna sinna. Niðurstöðurnar verða notaðar til stefnumörkunar í þjónustu félagsins og í samskiptum við heilbrigðisyfirvöld. Því er mikilvægt að sem flestir taki þátt í könnuninni svo niðurstöðurnar verði marktækar.

Könnunin er þrískipt. Fyrst er óskað eftir grunnupplýsingum til greiningar. Síðan er óskað eftir upplýsingum um ósýnileg einkenni og áhrif þeirra á daglegt líf og að lokum koma spurningar um hvort þörf sé á aðstoð í daglegu lífi, um félagslega einangrun og úrræði MS-félagsins.
 
Könnunin er nafnlaus og ekki hægt að rekja svör til einstakra svarenda.
 
Stjörnumerktum spurningum er nauðsynlegt að svara en aðrar spurningar eru valkvæðar.
 
Fræðsluteymi MS-félagsins biður MS-greinda því um að taka könnunina sem við áætlum að taki um 5-10 mínútur að svara. 

Þátttaka þín er mjög mikilvæg !

 

TAKA KÖNNUN

 

Hvar má nálgast könnunina?

Könnunin er eingöngu ætluð fólki með MS-sjúkdóminn og má nálgast slóð á könnunina hér.

 

Aðstoð

Komi upp vandamál við að svara könnuninni, má hafa samband við Berglindi Ólafsdóttur á netfangið berglindo@msfelag.is.

 

Tímafrestur

Hægt verður að svara könnuninni til og með mánudags 27. janúar. Fólk er þó hvatt til að svara sem fyrst svo það gleymist ekki.

 

Ekki rekjanleg könnun

Allir einstaklingar með MS eru hvattir til að taka þátt en þátttaka er samt engin skylda. Það er þó þannig að því fleiri sem svara, þeim mun skýrari eru skilaboðin.

Svör þátttakenda eru ekki rekjanleg.

 

 

Kærar þakkir,

Fræðsluteymi MS-félagsins