Hó-hó-hó – það eru að koma jól.... Að venju stendur MS-félagið fyrir jólaballi og verður það haldið laugardaginn 7. desember n.k. kl. 14-16 í Safnaðarheimili Grensáskirkju. Húsið opnar kl. 13:30. 

Ingdís, skrifstofustjórinn okkar, hitti í einni fjallaferð sinni Grýlu sem lofaði að biðja einhverja jólasveina sína að koma við á jólaballinu með nammigott í poka fyrir börnin.

Í fyrra komu Giljagaur og Kertasníkir og voru þeir ótrúlega skemmtilegir. Er það ábyggilegt að jólasveinarnir sem Grýla mun senda okkur nú í ár verða ekki síður skemmtilegir.

Guðmundur mun sjá um að spila jólalögin á hljómborðið.

Veitingar í boði fyrir börn og fullorðna.

 

Aðgangur er ókeypis en skráning nauðsynleg.  

 

Skrá þarf þátttöku hér þar sem fram kemur fjöldi barna og fullorðinna.

 

Við hlökkum til að sjá ykkur !

 

 

Viðburðarnefndin