MS-félagið býður félagsmönnum að sækja nýtt og spennandi sjálfsræktarnámskeið sem hefst á nýju ári. Opið er fyrir skráningu á námskeiðið.

 

Námskeið: STERKARI ÉG

 

Lýsing

Hamingjan er í þínum höndum og verður ekki týnd í garði annarra!
Hvernig ert þú að rækta þinn garð?

Það er ávallt áskorun að læra eitthvað nýtt um sjálfan sig, sjálfsrækt er mikilvægur partur af því  að vaxa og dafna sem manneskja. Þetta sjálfsræktarnámskeið sprettur frá aðferðarfræði markþjálfunnar. Markþjálfun getur verið valdeflandi og því góð leið við að styðja fólk í sjálfsrækt.

Markmiðið með námskeiðinu er að efla hvern einstakling. Hver og einn vinnur með sína styrkleika og lífsgildi, þannig eflist sjálfsmyndin og styrkurinn.

Námskeiðið er í fjögur skipti 1,5 klst. í senn. Í hverjum tíma er eitt þema tekið fyrir, og ýmsar leiðir notaðar til að finna styrkleika hvers og eins.

 

Leiðbeinandi

Ásta Guðrún Guðbrandsdóttir, PCC markþjálfi.

 

Staður

Námskeiðið verður haldið í húsnæði MS félagsins að Sléttuvegi 5.

 

Tími

Þriðjudagana 18. janúar, 25. janúar, 1. febrúar, 8. febrúar kl. 16 - 17.30

 

Nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 568 8620.

 

Skráning hér eða á skrifstofu.