Þann 31. maí verður golfmót til styrktar MS-félaginu. Mótið er hefðbundið 9 holu punktamót og verður leikið á Bakkakotsvelli í Mosfellsbæ. 

Vinningar eru veglegir og líka dregið úr skorkortum að keppni lokinni.

Skráning er á golfboxinu en þau sem ekki eru með golf númer geta sent tölvupóst á agust@golfmos.is með upplýsingar um skráningu, netfang og síðustu forgjöf (ef einhver er til staðar).

Hvetjum sem flesta til að skrá sig og taka þátt – því allt skráningargjaldið fer beint til MS-félagsins.

Mundu að golf er fyrir allt fólk – og mest er gaman saman. Fyllum völlinn af gleði og smá keppnisskapi í bland við slatta af kæruleysi.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Styrktaraðilar mótsins

 

Styrktaraðilar í golfmóti

 

HYS