Fræðsluteymi MS-félagsins stendur fyrir fræðslufundi með fróðlegum fyrirlestrum um sálfræði, jóga og meðferðir við MS í húsnæði félagsins að Sléttuvegi 5, laugardaginn 6. apríl kl. 13-15.

 

Dagskrá:

13:00   Berglind Jensdóttir, sálfræðingur, með fyrirlestur um sálfræði

Félagið býður upp á sálfræðiþjónustu til reynslu fram til loka júní.

                       

13:30   Svava Blöndal, jógakennari, með fyrirlestur um jóga

Hvað er jóga og hvernig getur ástundun jóga hjálpað okkur við að efla lífsgæði okkar?

 

14:00   Bergþóra Bergsdóttir, fræðslufulltrúi, með fyrirlestur um meðferðir við MS

Fjallað verður um MS-lyf sem banka nú á dyrnar, rannsóknir og stofnfrumumeðferðir.

 

14:30 Veitingar og umræður

 

 

Fundarstjóri: Berglind Guðmundsdóttir

 

Skrá þarf þátttöku fyrir 4. apríl hér eða á skrifstofu í síma 568 8620

 

 

BB