Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Kæru félagsmenn, aðstandendur og velunnarar, í dag kl.15:30 ætlum við að vekja athygli á mikilvægi aðgengis fyrir alla!
Orð Þuríðar Hörpu Sigurðardóttur, formanns Sjálfsbjargar, eru sláandi en sönn.
“Ég hef upplifað að vera ekki lengur fullgild í okkar samfélagi vegna aðgengisleysis, slík slaufun, ef svo má að orði komast lýsir sér í því að komast ekki frjáls ferða minna, að þurfa að biðja um að fá aðgengi að gangstéttum og öllum þeim stöðum sem ég áður fór um án hindrana. Ég hef kynnst fólki sem er umhugað um gott aðgengi, það fólk hefur áttað sig á því að öll geta orðið hreyfihömluð á lífsleiðinni, um skemmri tíma eða varanlega og þá skiptir aðgengi öllu máli. Ég hef líka kynnst því að fólki finnist krafa um aðgengi ekki eiga rétt á sér ,,það sé aldrei hægt að gera alla staði aðgengilega‘‘. Slík hugsun er þröngsýn og til að breyta henni þarf viðhorfsbreytingu.”
Eftirfarandi sex aðildafélög Öbi standa að Aðgengisstrollinu vitundarvakning um aðgengismál:
MS- félag Íslands, Gigtarfélag Íslands, Samtök Endurhæfðra Mænuskaddaðra, MND félagið, CP félagið og Sjálfsbjörg landssamband hreyfihamlaðra.
Við hvetjum þig og þína til að mæta og taka þátt með okkur.