Léttar þrek-, styrktar- og liðkunaræfingar á fimmtudögum. Æfingarnar henta breiðum hópi þátttakenda, auðvelt er að aðlaga þær eigin hraða, ákefð og getu og þær flestar má gera annað hvort sitjandi í stól eða standandi.
 
Allir tímar byrja á öndunaræfingum þar sem unnið er með taugakerfið og ljúka með slökun í sitjandi stöðu.
Hver tími er 40-45 mínútur.
 
Athugið að tímarnir eru eingöngu fyrir félagsmenn í Facebook hópnum MS-þrek og jóga á netinu.
 
Leiðbeinandi  er Þuríður Árdís Þorkelsdóttir einkaþjálfari hjá Flott Þrek.