Hó-hó-hó – það eru að koma jól.... Að venju stendur MS-félagið fyrir jólaballi og verður það haldið laugardaginn 9. desember n.k. kl. 13 í Safnaðarheimili Grensáskirkju. Húsið opnar kl. 12:30. 

Ingdís, skrifstofustjórinn okkar, hitti í einni fjallaferð sinni Grýlu sem lofaði að biðja einhverja jólasveina sína að koma við á jólaballinu með nammigott í poka fyrir börnin.

Í fyrra komu Askasleikir og Skyrgámur og voru þeir ótrúlega skemmtilegir. Það er aldrei að vita nema þeir komi aftur.

Guðmundur Haukur Jónsson, hjá Tónskóla Guðmundar, mun sjá um að spila jólalögin af sinni alkunnu snilld.

Veitingar fyrir börn og fullorðna.

Aðgangur er ókeypis, en hægt verður að kaupa happdrættismiða á staðnum á 250 kr. stk. - flottir vinningar í  boði!

 Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst á msfelag@msfelag.is, í síma 568-8620 eða hér á síðunni. Munið að taka fram fjölda barna!