Hornsófinn góði fer aftur af stað eftir jólafrí þann 16. janúar og verður á dagskrá í vetur í MS-húsinu fyrsta og þriðja fimmtudag í mánuði milli klukkan 15.30 og 17:30.

Skemmtilegar umræður og handavinna fyrir þá sem vilja.

Leiðbeinandi er Sesselja Guðjónsdóttir textílkennari.

Það verður heitt á könnunni og jafnvel meððí.

Allir velkomnir.