12. nóvember kl. 16:30-23:59
Viðburðir
Þann 12. nóvember kl. 16:30 að íslenskum tíma verður vefútsending á Facebook og YouTube Live á vegum alþjóðlega síversnunarbandalagsins (IPMSA) um hvernig gervigreind í segulómun og blóðrannsóknum gæti markað þáttaskil fyrir fólk með síversnun í MS.
Mikil hindrun í þróun nýrra meðferða við síversnun í MS er að það skortir leið til að greina fljótt hvort meðferð sé að virka, þar sem síversnun getur verið hæg. Leitað hefur verið að lífmerkjum (biomarkers) sem geta sagt fyrir um sjúkdómsvirkni og greint svörun við meðferð. Í vefútsendingunni verður farið yfir hvernig notkun gervigreindar í segulómskoðunum og venjubundnum blóðrannsóknum gæti leitt til uppgötvunar lífmerkja til að spá fyrir um fötlun og sjúkdómsgang. Ný lífmerki myndu flýta fyrir klínískum rannsóknum á nýjum meðferðum.
Hægt er að skrá sig á viðburðinn (skráning tryggir aðgang að upptöku sem verður aðgengileg eftir á, ef þú getur ekki fylgst með beinni útsendingu). Nánari upplýsingar og skráning hér:
www.msif.org/progressiveMSwebcast/