AÐSTANDENDANÁMSKEIР                                                          

Tími: Föstudaginn 27. október kl. 13-16 og mánudaginn 13. nóvember kl. 17-19.

Staður: MS húsið, Sléttuvegur 5, 103 Reykjavík

Verð: 5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk.

Lýsing: Námskeiðið er fyrir aðstandendur MS-greindra og byggist á fræðslu, umræðum og stuðningi. Fræðsla verður um MS-sjúkdóminn og áhrif greiningar MS á fjölskyldumeðlimi. Fjallað verður m.a. um samskipti fjölskyldumeðlima, tilfinningar, aðlögun, meðvirkni og streitu. MS hjúkrunarfræðingur veitir fræðslu og svarar spurningum þátttakenda. Umræður á námskeiðinu gefa þátttakendum tækifæri til að ræða og miðla reynslu sinni og kynnast öðrum í svipuðum aðstæðum. Námskeiðið er haldið á föstudegi og stendur yfir í 4 klst. Umsjón: Margrét Sigurðardóttir, félagsráðgjafi og Sigríður Anna Einarsdóttir, félagsráðgjafi. Þær eru báðar með sérmenntun í hjóna- og fjölskyldumeðferð.

Skráning: Hér á síðunni eða í síma 568-8620