- MS-sjúkdómurinn
- Lyf, einkenni og meðferðir
- Lifað með MS
- Félagið
MS-félagið býður upp á stuðningsviðtöl hjá Berglindi Jónu Jensdóttur, sálfræðingi.
- Ef engir lausir tímar eru í bókunarkerfinu er hægt að skrá sig á biðlista hjá skrifstofu
félagsins í síma 568 8620 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.is
Stuðningsviðtölin standa félagsmönnum sem eru með MS og nánum aðstandendum þeirra til boða og eru endurgjaldslaus.
Viðtölin fara fram í notalegu viðtalsherbergi í MS-húsinu að Sléttuvegi 5.
Einnig er hægt að óska eftir fjarviðtali í gegnum öruggt kerfi, Kara Connect, sem er viðurkennt af bæði Landlækni og Persónuvernd. Þjónustan er því í boði fyrir félagsmenn okkar alls staðar á landinu.
Heilbrigðisráðuneytið styrkir sálfræðiráðgjöf félagsins árið 2022.
Berglind er með BS próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og MSc í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Berglind þekkir MS-
sjúkdóminn vel, þar sem móðir hennar glímdi við síversnandi MS og Berglind greindist síðan sjálf með sjúkdóminn fyrir nokkrum árum.
Lokaverkefni Berglindar í klínískri sálfræði fjallar um starfræn taugaeinkenni og var unnið í samstarfi við starfsmenn á taugasviði Reykjalundar. Hún var jafnframt í starfsnámi á geðsviði og taugasviði Reykjalundar.
Berglind hefur brennandi áhuga á að styðja MS-fólk og aðstandendur þeirra við að takast á við þær áskoranir sem MS-sjúkdómurinn felur í sér. Hún flutti erindi á 50 ára afmælisráðstefnu MS-félagsins haustið 2018 þar sem hún fjallaði um áhrif MS á lífsgæði og andlega líðan.
Berglind hefur starfað hjá Reykjavíkurborg og þjónustað bæði fullorðna og börn. Hún starfar nú hjá Umhyggju, félagi langveikra barna, ásamt því að vinna fyrir MS-félagið.
Viðtölin verða í boði á föstudögum og hægt er að bóka tíma: