Aðalfundur MS-félags Íslands verður haldinn mánudaginn 13. maí kl. 17:00 í MS-húsinu að Sléttuvegi 5 í Reykjavík bæði sem staðfundur og fjarfundur. Húsið opnar kl. 16:30.

Dagskrá fundar:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  2. Önnur mál

Í ár eru 2 aðalmenn og einn varamaður í kjöri til stjórnar og eru félagar hvattir til að bjóða sig fram.
Allir stjórnarmenn eru kosnir til tveggja ára.

Þá eru félagar hvattir til að gefa kost á sér í ritnefnd MS-blaðsins, viðburðanefnd og stjórn Skells, sjá hér fyrir neðan.

Tilkynna skal um öll framboð til skrifstofu eigi síðar en viku fyrir aðalfund, gjarnan með því að skrá sig hér eða senda tölvupóst á netfangið msfelag@msfelag.is og gefa upp fullt nafn, kennitölu, síma og tölvupóstfang ásamt því að tilgreina hvaða embætti er sóst eftir.

Atkvæðisrétt á aðalfundi hafa félagar sem eru skráðir í félagið eigi síðar en viku fyrir fundinn.

Félagar sem ætla að sækja fundinn sem fjarfund verða að skrá sig hér fyrirfram fyrir miðnætti 12. maí.

Veitingar í boði félagsins. Hvetjum félaga um land allt til að taka þátt.

Virðingarfyllst,
Stjórn MS-félags Íslands

 

Hlekkur á framboðsform

Hlekkur á skráningarform fyrir fjarfund

 

Hlutverk og starf nefnda og ráða

Ritnefnd MS-blaðsins: Hlutverk ritnefndar MS-blaðsins er að afla greina í blaðið og móta stefnu þess í samvinnu við ritstjóra. MS-blaðið kemur út tvisvar á ári, að vori og hausti og er sent til félaga, kostenda og fagaðila og er einnig aðgengilegt í rafrænu formi á heimasíðu.

Viðburðanefnd: Viðburðanefnd stendur fyrir ýmsum uppákomum í félagsstarfinu og er stjórn og starfsfólki einnig til aðstoðar við fasta viðburði á vegum félagsins. Hér má nefna t.d. margvíslegar kynningar og fyrirlestra, föndurkvöld, páskabingó og jólaskemmtun.

Skellur (ungmennaráð): Hlutverk ungmennaráðs er að vera félaginu til ráðgjafar og taka þátt í mótun stefnu fyrir yngra fólk í félaginu ásamt því að vera fulltrúar félagsins í ungmennaráðum og öðru starfi fyrir yngra fólk í regnhlífarsamtökum þeim sem félagið á aðild að, innlendum og erlendum. Ungmennaráð fer einnig fyrir félagshópnum ‚Skellur MS‘ sem í eru einstaklingar á aldrinum 18-35 ára. Tilgangur hópsins er að gefa fólki vettvang til að fræðast, deila reynslu, kynnast fólki og hafa gaman. Hópurinn stendur gjarnan fyrir viðburðum á borð við kaffihúsakvöld, keiluferðum og fleira, þegar aðstæður leyfa.