Ráð til að takast á við almenn hugræn einkenni

Reyndu að slaka á, hertu upp hugann og trúðu á sjálfa(n) þig.

  • Ef þú hefur áhyggjur af mögulegum hugrænum einkennum talaðu við lækni eða einhvern annan sem þú treystir.
  • Reyndu að tala við fjölskyldu og vini um einkennin þín. Þau gætu hafa skynjað einhverjar breytingar og geta samræður ykkar í milli komið í veg fyrir misskilning. Kannski getur þessi bæklingur hjálpað til við að útskýra líðan þína.
  • Mikilvægt er að þú þekkir eigin styrkleika og veikleika svo þú getir sett þér raunhæf markmið og forðast óþarfa óþægindi.
  • Með því að taka þátt í félagsstörfum eflir þú hugræna færni og nýtir hæfileika þína sem allra best.
  • Viðurkenndu eigin takmarkanir og vertu ekki feimin(n) við að biðja um hjálp við erfið verkefni.
  • Reyndu að forðast mikla þreytu. Lærðu á þreytueinkennin og reyndu að skipuleggja viðunandi hvíldarhlé.
  • Einbeittu þér að einu í einu. Reyndu að forðast að dreifa athyglinni á mörg verkefni í einu.
  • Notaðu hjálpartæki eins og almanak, dagbók, minnisbók o.fl.
  • Reyndu að þróa og efla eigin aðferðir til að takst á við einkennin og fáðu góðan vin til að hjálpa þér við að æfa þig. 

Ráð til að takast á við sértæk hugræn einkenni

Minniserfiðleikar

  • Færðu inn í tölvu, síma eða minnisbók það sem þú þarft að muna og stilltu á áminningu (píp/hringingu) ef þú þarft að muna eitthvað á tilteknum tíma.
  • Lærðu að nota almanaksbók og skrifaðu niður fyrir hvern dag það sem þarf að gera.
  • Vendu þig á að skoða þessar færslur á ákveðnum tímum, t.d. á matmálstímum eða á morgnana.
  • Settu sjálflímandi merkimiða á áberandi staði til að minna þig á það sem þú þarft að muna. Nota hljóðupptökumöguleika í stað þess að skrá eða skrifa niður.
  • Taktu myndir til dæmis á snjallsíma eða spjaldtölvu af því sem þú þarft að muna.
  • Notaðu minnistækni eða orðarím til að muna hluti.
  • Notaðu útskýringamyndir.
  • Endurtaktu fyrir sjálfum þér upplýsingar og skráðu lykilatriði.

 fagadila

Skipulag

  • Hafðu ákveðna staði fyrir lykla, skæri eða þess háttar sem auðveldlega glatast og biddu aðra fjölskyldumeðlimi um að setja hlutina á rétta staði að notkun lokinni.
  • Reyndu að koma þér upp ákveðnum venjum við framkvæmd verkefna svo þau verði auðveldari að muna. 

Erfiðleikar með athygli og einbeitingu

Ef þú telur að þú missir þráðinn þegar þú ert truflaður á einhvern hátt:

  • Reyndu að forðast það sem truflar þig þegar þú ert að tala við einhvern eða ert á kafi í verkefni. Slökktu á útvarpi og sjónvarpi og einbeittu þér að því að gera aðeins eitt í einu.
  • Reyndu að fá eigin vinnuaðstöðu þar sem minna er um utanaðkomandi áreiti.
  • Lækkaðu eða slökktu á símanum á meðan þú ert að vinna að verkefni svo þú verðir ekki fyrir truflunum.

Ef þú átt erfitt með að einbeita þér í lengri tíma í einu:hvild

  • Reyndu að taka tillit til þreytu og farðu ekki fram úr sjálfum/sjálfri þér.
  • Skipuleggðu daginn vel svo þú vinnir mikilvægustu verkefnin þegar þú ert úthvíld/ur.
  • Reyndu að gera ekki of miklar kröfur til þín og getu þinnar til einbeitingar þegar þú ert þreytt/ur.
  • Reyndu að hægja á þér – það liggur ekki alltaf svo mikið á.
  • Skipuleggðu hvíld.

Erfiðleikar með stýrifærni, einsog að skipuleggja, framkvæma og meta verkefni

Vertu skipulagður/skipulögð. Skipulagning á daglegu lífi gefur þér betri yfirsýn, einbeitingu og minni (sjá fleiri góð ráð undir öðrum köflum).

Notaðu dagatal til að skipuleggja daginn og vikuna, jafnvel með maka þínum eða samstarfsfólki.

Segðu fjölskyldu þinni og vinum frá því að þér þyki best ef viðburðir eru skipulagðir fyrirfram, eins og heimsóknir, bæjarferðir o.þ.h.

Ekki hika við að biðja um aðstoð.

Gerðu áminningarlista og listaðu verkefnið upp skref fyrir skref. Það getur hjálpað þér í gegnum erfið verkefni. Ef þú átt til dæmis von á gestum, skráðu nákvæmlega hvað þú þarft að gera, hvað þarf að kaupa inn og hvenær.

Erfiðleikar með úrvinnsluhraða

Gefðu þér meiri tíma til að læra og muna nýja hluti.

Upplýstu aðra um að þú gerir hlutina aðeins hægar en áður en að þú vitir að þú getir lokið við verkið.

Reyndu að skipuleggja eins mikið og hægt er til að forðast aðstæður þar sem þú þarft að taka snöggar ákvarðanir. 

Erfiðleikar með orðaleit

  • Segðu fjölskyldu þinni og vinum frá erfiðleikum þínum við að finna (réttu) orðin þegar þú talar. Segðu þeim hvernig þú vilt að þau bregðist við, þ.e. hvort þú viljir að þau hjálpi þér við að finna réttu orðin eða ekki.
  • Reyndu að taka virkan þátt í umræðum.
  • Til eru margir góðir leikir og æfingar sem er góð þjálfun fyrir minnið.