Karfan er tóm.
- Sjúkdómurinn
- Lifað með MS
- Þjónusta
- Útgáfa
- Um félagið
- Styrkja starfið
- Vefverslun
Karfan er tóm.
Stuðningsviðtölin standa félögum sem eru með MS og nánum aðstandendum þeirra til boða og eru endurgjaldslaus.
Viðtölin fara fram í notalegu viðtalsherbergi í MS-húsinu að Sléttuvegi 5.
Einnig er hægt að óska eftir fjarviðtali í gegnum öruggt kerfi, Kara Connect, sem er viðurkennt af bæði Landlækni og Persónuvernd. Þjónustan er því í boði fyrir félaga okkar alls staðar á landinu.
Heilbrigðisráðuneytið styrkir sálfræðiráðgjöf félagsins árið 2023.
Berglind Jóna Jensdóttir sálfræðingur
Berglind er með BS próf í sálfræði frá Háskóla Íslands og MSc í klínískri sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Berglind þekkirMS-sjúkdóminn vel, þar sem móðir hennar glímdi við síversnandi MS og Berglind greindist síðan sjálf með sjúkdóminn fyrir nokkrum árum.
Lokaverkefni Berglindar í klínískri sálfræði fjallar um starfræn taugaeinkenni og var unnið í samstarfi við starfsmenn á taugasviði Reykjalundar. Hún var jafnframt í starfsnámi á geðsviði og taugasviði Reykjalundar.
Berglind hefur brennandi áhuga á að styðja MS-fólk og aðstandendur þeirra við að takast á við þær áskoranir sem MS-sjúkdómurinn felur í sér. Hún flutti erindi á 50 ára afmælisráðstefnu MS-félagsins haustið 2018 þar sem hún fjallaði um áhrif MS á lífsgæði og andlega líðan.
Berglind hefur starfað hjá Reykjavíkurborg og þjónustað bæði fullorðna og börn. Hún starfar nú hjá Umhyggju, félagi langveikra barna, ásamt því að vinna fyrir MS-félagið.
Sigrún Ólafsdóttir Flóvenz sálfræðingur
Sigrún lauk Cand. psych prófi frá Háskóla Íslands árið 2008 og doktorsprófi í sálfræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2021.
Sigrún hefur víðtæka reynslu af greiningu og meðferð sálræns vanda bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Hún hefur meðal annars unnið innan réttarvörslukerfisins á Íslandi, verið deildarsálfræðingur fyrir tvær innlagnardeildar á sjúkrahúsi í Stokkhólmi, unnið á göngudeild fyrir fólk með margvíslegan geðrænan vanda, séð um sálfræðiþjónustu fyrir háskólanema og veitt sálfræðinemum í þjálfun handleiðslu.
Á undanförnum árum hefur Sigrún lagt stund á rannsóknir í sálfræði og komið að kennslu við Háskólann í Reykjavík.
Viðtölin eru í boði á föstudögum og hægt er að bóka tíma: