Forsíða - Um félagið - MS-íbúðin

MS ÍBÚÐIN er að Sléttuvegi 9

Íbúðin er á 2. hæð, í húsinu er lyfta og er íbúðin mjög aðgengileg fyrir fatlaða. Í eiginlegu svefnherbergi eru tvö stök rúm og þar af er annað mjög gott sjúkrarúm sem hægt er að hækka og lækka. Þá er svefnsófi í stofu sem rúmar tvo, þannig að alls geta fjórir gist í íbúðinni í einu. Jafnframt er í íbúðinni að sjálfsögðu ágætlega búið eldhús, eldhúskrókur og stofa með sjónvarpi o.fl.

MS félagið sér um þrif á íbúðinni, en við biðjum alla um að ganga vel um íbúðina okkar. Góð umgengi hjálpar til við að halda kostnaði í lágmarki. Vinsamlega látið vita ef eitthvað skemmist eða bilar. 

Íbúðin er leigð út frá einum sólarhring upp í viku í senn. Sængur og koddar eru fyrir fjóra og hægt er að fá rúmföt og handklæði leigð hjá félaginu.

VERÐSKRÁ

MS-fólk - kr. 3.000 pr.nótt, rúmföt 500 kr.
Ef gistinætur hjá félagsmönnum verða fleiri en 3 lækkar verðið niður í 1.500 kr. pr. nótt.

Aðrir -  kr. 7.000 pr.nótt, rúmföt 1.000 kr.
Ef næturnar hjá gestum verða fleiri en 3 lækkar verðið niður í 3.500 kr. pr. nótt.

Skoðið myndir úr leiguíbúð MS-félagsins hér fyrir neðan, en íbúðin hefur nýlega verið tekin í gegn, máluð og hluti innbús endurnýjaður.

StofaStofa

StofaStofa

EldhúsSvefnherbergi

         Baðherbergi                  Baðherbergi

Mars 2010