MS-félagið er með einstaklega góðan sal til leigu að Sléttuvegi 5 sem tekur um 60 manns í sæti. Salurinn er leigður út fyrir hvers kyns mannfagnaði; veislur, fyrirlestra og fundi, um helgar og eftir kl. 17 virka daga. Viðburði þarf að vera lokið fyrir kl. 22 og vínveitingar eru ekki leyfðar á staðnum.

 

Salurinn

 

Mjög gott aðgengi er að salnum og er hann búinn skjávarpa, píanó og borðbúnaði. Hægt er að leigja hljóðkerfi af félaginu.

Allar nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 568 8620.

 

Mynd úr sal

 Mynd úr sal