Léttar þrek-, styrktar- og liðkunaræfingar fyrir félagsmenn í MS-félagi Íslands á fimmtudögum kl. 12:00. Hver tími er 40-45 mínútur. Athugið að tímarnir eru eingöngu hér á netinu.
 
Æfingarnar henta breiðum hópi þátttakenda, auðvelt er að aðlaga þær eigin hraða, ákefð og getu og þær flestar má gera annað hvort sitjandi í stól eða standandi.
 
Annar hver tími er jógatími sem mun samanstanda af mjúku jóga þar sem bæði verða gerðar æfingar og teygjur sem liðka og styrkja líkamann, annaðhvort í sitjandi stöðu eða standandi þar sem stóll er til stuðnings. Jógatímarnir eru á þriðjudögum klukkan 12.
 
Þá munu allir tímar byrja á öndunaræfingum þar sem unnið er með taugakerfið og ljúka með slökun í sitjandi stöðu.
 
Leiðbeinendur eru Þuríður Árdís Þorkelsdóttir einkaþjálfari hjá Flott Þrek og Guðný Petrína Þórðardóttir jógakennari.

 

Hlekkur á hópinn á facebook