Í ljósi núgildandi samkomutakmarkana og fjölda smita undanfarið sjáum við okkur því miður ekki fært að halda jólaball í raunheimum þetta árið.

---

Jólaball í raunheimum

Nú ætlum við að leyfa okkur að vera bjartsýn og stefnum af fullum hug á að halda árlegt jólaball félagsins í Safnaðarheimili Grensáskirkju þann 11. desember kl. 14-16.

Húsið opnar kl. 13:30. 

Jólasveinarnir mæta á staðinn með glaðning í poka fyrir börnin og Guðmundur spilar jólalögin fyrir okkur.

Veitingar í boði fyrir bæði börn og fullorðna.