Aðalfundur MS-félags Íslands verður haldinn í fjarfundi fimmtudaginn 14. maí 2020 kl. 17 í MS-húsinu að Sléttuvegi 5 í Reykjavík.

Í ljósi aðstæðna er einungis gert ráð fyrir að starfsmenn og stjórnarmeðlimir mæti á Sléttuveginn. 

Aðrir fundarmenn taka eingöngu þátt með rafrænum hætti í gegnum forritið Zoom.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á fundinum fyrir fram og er skráningarform að finna hér

Þátttakendur fá sendan tölvupóst miðvikudaginn 13. maí með hlekk sem veitir aðgang inn á fundinn.


Dagskrá:

  1. Venjuleg aðalfundarstörf
  2. Önnur mál

Vinsamlega athugið að framboð til stjórnar og nefnda skal tilkynna til skrifstofu eigi síðar en viku fyrir aðalfund og að atkvæðisrétt á aðalfundi hafa einungis þeir sem eru skráðir í félagið eigi síðar en viku fyrir fundinn og hafa greitt árgjald. 

Við hvetjum félagsmenn til að taka þátt og skrá sig sem fyrst.

Virðingarfyllst,
Stjórn MS-félags Íslands

 

Frekari upplýsingar:

Á skrifstofu
Fundarboð
Stjórn og nefndir
Lög, fundargerðir og stefnumótun
Saga félagsins