Skráning er hafin í hóptíma fyrir fólk með MS sem Styrkur, sjúkraþjálfun, Höfðabakka 9, sér um og miða að því að efla styrk, færni, jafnvægi og úthald. Þjálfunin er þó einstaklingsmiðuð. Mjög góð aðstaða er hjá Styrk, bæði til hópþjálfunar og æfinga í tækjasal.

Fyrsti tíminn eftir áramót er mánudagurinn 9. janúar.

Öllum er frjálst að koma og taka prufutíma eða fylgjast með. Æfingarnar þykja mikil áskorun, einstaklega fjölbreyttar og skemmtilegar. Enginn tími er eins.

 

Boðið er upp á tvo námskeiðshópa;

Hóp I á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum  kl. 13Úr tíma

Hóp II á mánudögum kl. 14 og fimmtudögum kl. 14:30

 

Hópunum er skipt upp eftir getu. Almennt má segja að hópur I sé fyrir þá einstaklinga sem ekki notast við gönguhjálpartæki og hópur II fyrir þá einstaklinga sem notast við gönguhjálpartæki.

 

Æfingar miða við sértæka líkamlega þjálfun í hópi með áherslu á jafnvægi, færni og úthald.

 

Sjá myndir frá æfingartíma hér.

 

Umsjón: Belinda Davíðsdóttir Chenery og Sigurður Sölvi Svavarsson.

 

Verð er mismunandi fyrir einstaklinga en fer eftir gjaldskrá Sjúkratrygginga Íslands um hópþjálfun, sjá hér.

Skráning og nánari upplýsingar hjá Styrk í síma 587-7750.

Sjá vefsíðu Styrks hér.

 

 

Í grein Sifjar Gylfadóttur í 1. tbl. MeginStoðar 2013 (sjá hér) segir: „Jafnvægisskerðing er einn algengur vandi sem einstaklingar með MS -sjúkdóm takast á við í daglegu lífi. Rannsóknir sýna að hægt er að hafa áhrif á heilann með þjálfun og nýta þannig aðlögunarhæfni hans til aukinnar líkamlegrar getu til athafna. Sértæk líkamleg þjálfun hefur sýnt sig að skilar árangri til að viðhalda og bæta göngugetu, bæta jafnvægi og auka jafnvægisöryggi fólks með MS -sjúkdóm.“