Tími:

Mánudagur 12/02 kl. 17-19
Fimmtudagur 15/02 kl. 17-19
Laugardagur 17/02 kl. 10-14
Mánudagur 19/02 kl. 17-19
Fimmtudagur 22/02 kl. 17-19

Staður:

MS-húsið, Sléttuvegi 5, Reykjavík.

Verð:

5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk.

Lýsing:

Námskeiðið er fyrir MS-fólk með tiltölulega nýja greiningu (6 mán. til 3 ár) og byggist á fræðslu og umræðum. Markmiðið með námskeiðinu er að fólk fræðist um MS, kynnist öðrum með sjúkdóminn og fái stuðning. Á dagskrá verða umræður um tilfinningaleg viðbrögð við sjúkdómsgreiningunni og áhrif MS á daglegt líf. Kynntar eru leiðir til að aðlagast betur og efla styrk þátttakenda. Þátttakendur eru 6-8 og námskeiðið er í 6-7 skipti, 2 klst. vikulega. Hægt er að stofna sjálfshjálparhóp í lok námskeiða.

Umsjón:

Sigríður Anna Einarsdóttir, félagsráðgjafi. Einnig koma að námskeiðinu taugalæknir, sjúkraþjálfari, hjúkrunarfræðingur og aðrir fagaðilar.

Skráning:

Skráning hér á síðunni  eða á msfelag@msfelag.is. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 568-8620.

ATH! Lágmarksfjöldi þátttakenda verður að nást til að námskeiðið sé haldið, dagsetningar að ofan eru því gefnar með fyrirvara um breytingar.