Námskeið fyrir nýgreinda einstaklinga með MS (6 mán. til 3 ár frá greiningu) hefst mánudaginn 25. september.

 

Markmiðið með námskeiðinu er að fólk fræðist um MS, kynnist öðrum með sjúkdóminn og fái stuðning. Á dagskrá verða umræður um tilfinningaleg viðbrögð við sjúkdómsgreiningunni og áhrif MS á daglegt líf. Kynntar verða leiðir til að aðlagast breyttum aðstæðum en einnig verður leitast við að efla styrk þátttakenda (sjálfstyrking).

 

Tími 

September:

  • Mánudagurinn 25. september kl. 17:30 – 19:30
  • Fimmtudagurinn 28. september kl.17:30 – 19:30       
  • Laugardagurinn 30. september kl. 10:00 – 14:00

 

Október:

  • Fimmtudagurinn 5. október kl. 17:30 – 19:30
  • Fimmtudagurinn 12. október kl. 17:30-19:30

 

Staður

Sléttuvegur 5, 103 Reykjavík.

 

Verð 

5.000 kr. Þeir sem eru búsettir utan höfuðborgarsvæðisins geta sótt um ferðastyrk.

 

Lýsing 

Námskeiðið er fyrir MS-fólk með tiltölulega nýja greiningu (6 mán. til 3 ár) og byggist á fræðslu og umræðum. Markmiðið með námskeiðinu er að fólk fræðist um MS, kynnist öðrum með sjúkdóminn og fái stuðning. Á dagskrá verða umræður um tilfinningaleg viðbrögð við sjúkdómsgreiningunni og áhrif MS á daglegt líf. Kynntar eru leiðir til að aðlagast betur og efla styrk þátttakenda.

 

Þátttakendur eru 6-8. Hægt er að stofna sjálfshjálparhóp í lok námskeiðsins.

 

Umsjón

Sigríður Anna Einarsdóttir, félags-og fjölskylduráðgjafi, sér um námskeiðið. Fleira fagfólk kemur einnig að námskeiðinu.

 

 

Skráning og allar nánari upplýsingar á skrifstofu í síma 568 8620 eða með tölvupósti á msfelag@msfelag.isEinnig má skrá sig með hér á síðunni